Heimsreisan

Heimsreisan

Hér að neðan má sjá ferðalagið í grófum dráttum.   

 

5. Janúar – ENGLAND

Við veltum okkur hægt og rólega út í djúpulaugina og byrjum í London. Þar munum við fara í te í Buckinghampalace og eiga gott spjall við Betu og fá allt nýjasta slúðrið í æð. Auk þess munum við fara í sleik við Harry og Will.

 

9. Janúar – FRAKKLAND

Þaðan liggur leið okkar til Parísar þar sem við munum eiga gassalega rómantíska helgi og skoða söfn, borða fransbrauð og drekka kaffi.

12. Janúar – PÓLLAND

Næsta stoppustöð verður Pólland þar sem við skoðum sögulegar minjar um seinni heimstyrjöldina, svo sem Auscwitch.

 16. Janúar – RÚSSLAND

Þaðan hoppum við til Moskvu þar sem við tökum eina ballet sýningu til að skemmta landanum, finnum Anastasiu og skilum henni.

20. Janúar – SÍBERÍA/MONGÓLÍA

Þá tekur við sex daga lestarferð með Síberíuhraðlestinni (n.b. HRAÐlestin sem fer mest 60km/klst (ég hleyp hraðar!)) Þar munum við sofa í kojum með skítugum Rússum, taka í tafl og drekka vodka.

26. janúar- KÍNA

Þeirri lestarferð endar í Beijing aka. Peking. Þar sem við höldum uppá Nýja árið með Mao og félögum með  því að sprengja kínverja (og aðra flugelda). Klárum að byggja múrinn og  dílum við Terracotta hermennina um að vera lífverðir okkar í ferðinni.

2./3.  Febrúar – VÍETNAM

Því næst er ferðinni heitið til Ho Chi Minh City (með smá stoppi í HongKong), þar munum við láta sérsauma á okkur nýjustu tískufötin, þar sem við getum valið úr hvaða merkjavöru sem er.

24. Febrúar - LAOS

Laos verður næst á vegi okkar. Við munum gista í trjákofum, fara í mótorhjólaferðir um ókannaða skóga og borða banana með öpum.

10. Mars – TÆLAND

Í Tælandi verðum við mjög svo tælandi og ætlum bara að njóta lífsins og fá nudd á hverjum degi, ferðast um á fílum og sitja glaðar í sólinni.

 24. Mars – KAMBODÍA

Svo förum við til Kambodíu þar sem við förum á slóðir Löru Croft, Pol Pots og Rauðu Khmeranna.

9. Apríl - ÁSTRALÍA

 

Eftir Kambodíu förum við aftur til Ho Chi Minh City (Víetnam) þaðan sem við fljúgum til Ástralíu og höldum uppá páskana með Bob og Juliet Faulkner, köfum, snorklum, surfum, syndum, sólböðum, siglum, hoppum og skoppum með kengúrum. Einnig heimsækjum við nágranna okkar Lou Carpenter og Toadie.

30. Apríl – BNA/LA

Hin mikilfenglega reisa okkar endar svo í hinum einu sönnu Bandaríkjum. Þar byrjum við á því að djamma og djúsa með Paris Hilton og Justin Timberlake í borg englanna, heilsum uppá Britney og börnin og spókum okkur í Beverly Hills.

 8. Maí – LAS VEGAS

Svo er það helgartjútt í LasVegas þar sem við knúsum götubeyjurnar á 20 metra löngum limmum, drekkum kampavín og græðum hellings pening í spilavítum.

12. Maí – TENNESSEE

Loka hnykkurinn er svo í Nashville, þar sem við gefum Caleb Followill og félögum ráðleggingar um lífið og tilveruna og tónlist. Heimsækjum Gauju frænku og snörum niður nautgripi og dönsum línudans.

29. Maí Svo fljúgum við heim frá Eplinu Stóra.

 


7 svör hingað til »

  1. 1

    Hrund sagði,

    *ÖFUND ÖFUND ÖFUND ÖFUND!!* ómæj verður gaman hjá ykkur stelpur!! þið lofið að skemmta ykkur fyrir mig líka er þaggi? =D

    vildi ÓSKA að ég væri að fara í svona.. frá og með NÚNA er ég byrjuð að safna held ég!

  2. 2

    Hildur Gríms sagði,

    Þetta hljómar alls ekki illa- meira svona SPENNANDI!!!!!

  3. 3

    Elín Rós sagði,

    Mikið líst mér nú vel á þetta hjá ykkur:) verst að ég verð ekki komin til Parísar þegar þið eruð þar við hefðum getað tekið feitt djamm;) en fyrst þið eruð nú að fara þanngað þá mæli ég með að kíkja á (fyrir utan þetta típíska) Versalir, Sacre Core (þar er einmitt listamannahverfið það er líka gaman að skoða) og svo auðvitað Latínuhverfið og svo auðvitað væna göngu um Champs-Élysées :)

  4. 4

    Stefán Á. sagði,

    Vá þetta er mikið meira en það sem ég bjóst við að þið væruð að gera.

    Ég hitti ykkur í Las Vegas og kem með ykkur heim á afmælisdaginn..

  5. 5

    kristinogdora sagði,

    díll Stefán!

  6. 6

    Hrafnhildur sagði,

    Vá en gaman! Ég á eftir að ylja mér við bloggið ykkar alveg inn að hjartarótum þegar ég sit á kaldakalda Íslandi og læri…!

  7. 7

    þórey sagði,

    góða ferð elskurnar og gangi ykkur vel


Ummæli RSS · TrackBack URI

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.