Archive for Undirbúningur

Erum að leggja í hann…

Góðan daginn hér og velkomin að skjánum.

Jæja þá er langþráður draumur við það að verða að veruleika og held ég að ég geti sagt fyrir hönd okkar beggja að spennan sé að ná algjöru hámarki. Það verður nú erfitt að skilja ykkur öll ein eftir hérna á Íslandi en við vonum nú að þið ráðið við það þangað til við komum heim aftur.

Erum að pakka niður í pokana öllu því nauðsynlegasta, hlaða I-podana og myndavélarnar svo ég tali nú ekki um okkar eigin batterí, þar sem næsti mánuður eða svo verður talsvert strembinn hjá okkur; 7 lönd á einum mánuði, geri aðrir betur!

Fljúgum kl 1700 á morgun til London þar sem við höfum fengið húsaskjól hjá Svövu frænku minni.

Verið dugleg að fylgjast með!

Þangað til næst….

Kristín Gjééé

Ummæli (17) »

Tvær vikur

Nú eru bara tvær vikur í ævintýrið mikla og við  iðum í skinninu af eftirvæntingu.  Við skulum aðeins kíkja á hvað við erum búnar að gera fyrir þessa ferð:

- Kaupa öll flug
- Kaupa lestarmiða í Trans Mongolian Railway (Síberíulestina)
- Fara í skvilljón sprautur (fengum eina SKÆR bleika)
- Vera spenntar
- Kaupa gjaldeyri (því við vorum skíthræddar við gengið en töpuðum feitast á því, klappklapp(en okkur er samt alveg sama))
- Fá vegabréfsáritanir til Rússlands og Kína, hin verðum við að pikka upp á leiðinni (vonum bara að einhver hafi misst sín og við finnum þau!)
- Lesa og lesa og lesa og lesa og lesa ferðablogg og bækur(eða eiginlega bara Kristín)
- Velta vöngum yfir malaríulyfjum
- Vera spenntar
- Verða okkur útum allskonar nauðsynlegt ferðadót
- Kaupa góða göngusandala (og týna þeim)
- Telja niður í ferðina frá 199 degi

Þannig nú eigum við bara eftir að halda jól og áramót, pakka niður í pokann og leggja af stað. Vonum að þið verðið dugleg að fylgjast með og senda okkur kveðjur af klakanum.

Með gleði í hjarta, og jólin í buxunum.

-Dóra the Explorer og Kristín Klossi.

Ummæli (17) »

Bloggsíða í fæðingu

Jæja, það styttist og styttist og styttist í að við leggjum í hann svo það er ekki seinna vænna að fara að setja upp bloggsíðu svo fólk geti fylgst með ferðum okkar, uppátækjum og ævintýrum.

Endilega fylgist með,

Verið spennt, verið verulega spennt!

Not over but out for now,

Dora the Explorer.

Ummæli (3) »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.