Archive for Síberíuhraðlestin

Síberíulestin

Svanavatnid i Bolshoi leikhusinu var sennilega hapunktur heimsoknar okkar
til Moskvu. Fyrir utan skemmtunina ad horfa a staelta karlmenn i sokkabuxum
skoppandi um svidid hofdum vid mikid gaman af syningunni sem var glaesileg i
alla stadi. Vid tokum allan tilfinningaskalan a thetta:
gaesahud, hlatur, gratur og allt thar a milli. I einu ordi sagt Frabaert!

Sidustu dogunum i einni af dyrustu borgum heims eyddum vid svo bara i ad
skoda borgina og mannlifid sem er frekar serstakt. Thjonustulund er ekki
mjog hatt skrifud her og folk fordast tad i lengstu log ad lita i augun a
manni eda brosa til manns. Vid nadum tho ad kaupa okkur ymis konar varning
sem ekki verdur tiundadur her.

Manudaginn 20. januar logdum vid i eina af lengstu lestarferdum sem um
getur; Rumlega 6 daga ferdalag i gegnum obyggdir Russlands, Siberiu og
Mongoliu med endastoppi i olympiuborginni Peking i Kina. Spennandi!

Vid hofdum gert okkur ymsar hugmyndir um lestina og thad sem kynni ad maeta
okkur tar. Kom okkur eilitid a ovart ad vera myndadar i bak og fyrir med
mjog professional vidjokameru er vid trodum okkur, bakpokunum, matarpokunum
og sidast en ekki sist vodkafloskunum inn i lestina. Kunnuglegt, syngjandi
tungumal omadi um allan vagninn og engar babuskur ne sveittir russar
sjaanlegir. Vid fengum fljott ad vita ad samferdafelagar okkar voru naer
allir saenskir, utan einn Mongola og sidar ungan kruttlegan russa ja og
nokkrar babuskur reyndar sem hoppudu upp i a leidinni. Vid fengum lika ad
vita ad ungi madurinn med myndavelina var hluti af saensku kameru teymi sem
var ad gera heimildarmynd um Siberiulestina sem lokaverkefni i
kvikmyndaskola i Svithjod. Thannig ad ef allt gengur eftir gaeti verid ad
vid Dora verdum landsfraegar i Svithjod innan nokkurra manada.

Vid hofdum undirbuid okkur vel undir laaaanga daga og leidindi med fullt af
bokum, spilum, tonlist og fleira en thad gafst eiginlega enginn timi i ad
lata ser leidast. Vid eyddum flestum stundum i godum felagsskap sviana sem
kenndu okkur allar helstu bolvanir theirra, sogdum sogur af okkur sjalfum og
folkinu heima. A kvoldin faerdist svo fjor i leikinn thegar vid hoppudum ut
a brautarpallana og byrgdum okkur upp af vodka og bjor sem seldur var i 2
litra floskum. Vid sungum heimatilbuin log um siberiulestina asamt nokkrum
valinkunnum vestraenum slogurum sem Tsetsan (mongolinn) song af mikilli
innlifun. Kameru crewid filmadi allt sem fram for, tok vid okkur alls konar
vidtol og spurdi okkur spjorunum ur, sem var nu bara gaman. Nu er bara ad
bida og vona ad vid hofum komid vel ut.

Komid vel ut ja, tad var nu meira en ad segja tad ad lita vel ut i lestinni
thar sem enginn sturta eda annad slikt var um bord. Eftir um 4 daga i
lestinni thotti okkur Doru nog komid af skit og fylu hverrar annarar thannig
vid akvadum ad gera tilraun til ad bada okkur. I mjog svo frumstaedri
sturtu inn a hinu mjog svo illa lyktandi salerni lestarinnar tokst okkur tho
ad skola af okkur mesta skitinn sem var himneskt. I sambandi vid hreinlaeti
hofdum vid Dora heldur ekki hugsad ut i tad ad taka med okkur klosettpappir
tannig ad ef vid nadum ekki einu rullunni sem skammtad var a klosettid a dag
urdum vid ad strjuka a okkur aedri endann med blautthurrkum sem vid hofdum
med okkur ad heiman. Thegar thaer klarudustu voru god rad dyr en neydin
kennir ju naktri konu ad spinna thannig ad naest drogum vid fram
sotthreinsandi kluta sem vid hofdum einnig med okkur ad heiman; Eg held eg
geti talad fyrir hond okkar beggja thegar eg segi ad vid hofum sennilega
aldrei haft eins hreina rassa. Thad var svartur dagur thegar thessir klutar
klarudust lika. Tha var gripid til enn frumstaedari adferda sem verda ekki
utlistadar her :) I thessu samhengi ma einnig nefna ad hreint drykkjarvatn
var adeins faanlegt a brautarpollunum thannig ad thegar thad klaradist var
litid annad haegt ad gera en ad bida eftir naesta stoppi eda gripa til
annara rada. Eg lenti t.d. einu sinni i tvi ad bursta tennurnar upp ur
vodka. Er thad slaemt?

,,Dem itt! Vatnid er buid! Dem itt 2! klosettpappirinn er buinn! Dem itt 3!
Vid vorum ad vakna og tad er ordid dimmt aftur!”

Ca. tad sem Dora skrifadi i dagbokina sina einn daginn (vil ekki ad vekja
hana til ad fa tetta nakvaemlega rett) :)

Thegar lida tok a ferdina for ollum ad lida frekar skringilega sokum
svefnleysis, flakki a milli timabelta og einhaefu mataraedi sem samanstod
adallega af nudlum ja og vodka. Thad var tvi mikill lettir thegar russneski
matarvagninn let sig hverfa vid landamaeri Russlands og Mongoliu og vid
gatum fengid okkur godan mongolskan mat. Thegar vid komum inn i Kina fengum
vid svo 2 friar maltidir i kinverska vagninum i tilefni af kinverska nyarinu
sem hofst daginn sem vid komum inn i Kina.

Starfsfolkid i lestinni samanstod eingongu af kinverskum karlmonnum sem sa
um ad halda vognunum hreinum og halda gestunum i skefjum. Vid vorum mjog
heppin med Mr. Li sem var umsjonarmadur vagns nr. 6, sem var skandinaviski
partyvagninn. Hann taladi enga ensku en vid nadum samt sem adur ad spjalla
heilmikid vid hann og hafa gaman.

Lestin stoppadi um thad bil 5 sinnum a solarhring og hlupum vid tha
yfirleitt ut, tokum myndir og versludum varning af solufolkinu a
brautarpollunum. Eg hef held eg barasta aldrei upplifad annan eins kulda
eins og a thessum stundum. Maelirinn i lestinni sagdi t.a.m -38 gradur a
celsius tegar vid vorum stodd i hofudborg Mongoliu, Ulan Bator, sem er ju
sogd vera ein kaldasta hofudborg heims. Og eg get sagt ykkur ad tad er
mjoooog kalt! Enn og aftur, takk mommur fyrir hlyju fotin!

Landslagid var meirihattar alla leidina. Ad keyra i gegnum steppur Russlands
og Siberiu ad vetri til var geggjad! Misstum reyndar af Uralfjollunum en
snjor, fjoll og pinulitlir kofar inn a milli birkitrjanna var medal thess
sem vid saum. Nadum lika ad vaka heila nott til ad sja Baikal vatnid, sem er
dypsta vatn i heimi og staersta vatn i Russlandi. Heldum reyndar fyrst ad
vid hefdum misst af tvi en hlogum svo ad tvi tegar vid saum tad tar sem vid
keyrdum medfram tvi i ca. 3 tima i morgunskimunni. Otrulega fallegt og
merkilegt ad sja menn dorga ofan a isnum i thessum nistingskulda svo snemma
dags. Mongolia minnti okkur stundum a landslagid heima med endalausum
fjollum, gulnudu grasi og obyggdum en tho hef eg aldrei rekist a Kameldyr a
Islandi. Saum lika fullt af mongolskum hestum sem likjast teim islensku
talsvert mikid! Sidasta daginn keyrdum vid svo inn i Kina. Saum glitta i
Kinamurinn, fullt af litlum thorpum og miiiiikid af rusli.

Eins og their sem okkur thekkja vita hofum vid gridarlegt addrattarafl sem
vard til thess ad megnid af sviunum bokadi herbergi a sama hosteli og vid
hofdum gert i Peking. Vid erum eins og segull. Samneytid vid sviana hefur
lika ordid til thess ad vid Dora erum nu farnar ad skilja nanast allt sem
thau segja og getum spjallad sma vid thau a saensku lika. Saenska var
sennilega thad sidasta sem eg helt eg myndi laera i Siberiulestinni en tad
er nu bara gaman ad tvi.

Eftir 9001 km langt ferdalag i gegnum 3 lond a rumlega 6 dogum, lentum vid
heilar a holdnu i Peking manudaginn 26. januar. Frabaer ferd, frabaer
felagsskapur og frabaer lifsreynsla!
p.s. Bloggleysi okkar ma alfarid kenna ritskodun vefsidna her i Kina.
Komumst ekki inn a bloggid okkar her og tad var ekki fyrr en godvinur minn
hann Brynjolfur kom med ta snilldarhugmynd ad senda bloggid a e-n heima, og
lata thann adila setja thad inn a siduna fyrir okkur, ad eg akvad ad sulla
einhverju saman. Kann eg theim Billa og Helgu Thorey, sem setti bloggid inn,
mestu thakkir!

p.s. 2 Vona ad vodkadrykkjan hafi ekki komid illa vid maedur okkar. Thetta
hljomar mun verra en tad var og vid forum alltaf varlega :)

Dora a naesta leik og mun hun fjalla um dvol okkar her i Beijing eins fljott
og audid er.

Thangad til, veridi sael!

Kristin G.

Ummæli (22) »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.