Archive for Pólland

Spasiba. Bolsoj spasiba..

Eitt gott rad ef thid aetlid ykkur ad ferdast til Russlands i framtidinni. Laerid stafrofid.  Thad er ekki svo erfitt og thad audveldar manni mjög margt. Ef madur kann stafrofid tha getur madur t.d. fundid ut ad кино er lesid KINO og ef madur fylgdist med i dönsku i denn tha veit madur ad KINO thydir bio. Thannig ad  кино=bio! Alla vega hafid thad bakvid eyrad. Hjalpar heilmikid.. mörg russnesk ord eru ekkert svo olik thvi sem vid thekkjum, bara skrifud allt ödruvisi..

Vid flugum sem se fra Varsja til Helsinki og thadan til Moskvu a föstudaginn.  Thegar vid komum til Russlands thurftum vid ad bida nokkud lengi eftir thvi ad komast i gegnum vegabrefsskodum og thad var horft stift a okkur til ad ganga ur skugga um ad vid vaerum manneskjurnar a myndinni i vegabrefinu. En thad gekk allt blessunarlega, en sömu sögu var ekki ad segja med farangurinn okkar. Thegar vid komum ad faeribandinu tha var farangur utum ALLT.  Flestar töskur var buid ad setja i glaera plastpoka og stafla i hrugur en adrar lagu bara her og thar. Eins og bakpokinn minn (okey, bakpokinn hennar Birnu), la mjög umkomulaus a faeribandinu, en bakpokinn hennar Kristinar la hvergi. Hann var tyndur.

Obb bobb bobb.. ekki gott. Vid skottudumst i “Lost and found” og Kristin thurfti ad skrifa nidur fullt af upplysingum um bakpokann sinn og hvad hefdi verid i honum, a russnesk eydublod sem vid skildum litid i og konan i afgreidslunni taladi afskaplega takmarkada ensku en vid skildum alla vega ad vid aettum ad hringja daginn eftir og athuga hvort hann vaeri fundinn tha. Sem hann var, okkur til mikils lettis.

Rett i thessu vorum vid ad tjekka okkur inn a hostel, en vid erum buin ad vera hja theim önyu og Dima seinutu tvaer naetur ( couchsurfers). Thau bua i pinulitilli eins herbergja ibud, thannig ad vid svafum i sama herbergi og thau.  Bara nanast vid rumgaflinn theirra (thar er liklega astaedan komin fyrir thvi ad thau hosta bara i tvaer naetur i senn. Geta ekki gert lengri pasu a ehhh.. svefnherbergjaleikjunum sinum).  Thau eru reyndar baedi fra Ukraniu en eru samt eitthvad blöndud; russnsesk, hvitarussar og ukranisk, og hafa buid i Moskvu seinustu tvö ar.

Thau eru mjög yndael og almennileg. Foru med okkur nidur i bae thar sem vid saum Kremlin, Raudatorgid, Grafhysi Lenins og fullt af kirkjum sem eg kann ekki alveg deili a en voru mjög flottar og margar hverjar mjög gamlar. Dima leyfdi okkur ad smakka “medovukha” sem er russneskt hunangsöl og er gott ad fa ser thegar thad er kalt uti. Hann for lika med okkur a russneskan veitingastad sem heitir My-My (eda Mu-Mu) og bydur uppa hefdbundinn russneskan mat a sanngjörnu verdi. Thad var mjög gott og vid atum okkur svo pakksaddar ad vid thurftum ekki meira thad sem eftir var dagsins. Aetlum sko bokad ad fara thangad aftur.

Thau syndu okkur lika endalaust mikid af myndum. Af Moskvu ad sumri til, af St. Peturborg, af Ukraniu, fra brudkaupinu theirra og brudkaupsferdinni, fra lautarferdum, fiskiturum og margt margt fleira (held vid höfum skodad naestum allar myndirnar theirra). Thad var mjög gaman ad fa ad sja og heyra um allar thessar hefdir sem thau hafa i kringum brudkaup. T.d. tharf brudguminn ad saekja brudina inn i herbergid hennar og allir aettingjar hennar mega stoppa hann i thvi og krefja hann um adgangseyri. Eins og “Eg hleypi ther ekki framhja nema eg fai vinflosku”, og hann verdur ad verda ad osk theirra, en ma reyndar semja eitthvad. Ad bidja um vin, peninga og nammi er vinsaelast.  Svo thegar hann er kominn framhja theim, tha tharf hann ad leysa ymsar thrautir. Yfirleitt spurningar sem snua ad brudinni. Thannig thad getur verid snuid og dyrt ad vera brudgumi i Ukraniu!

Thau gafu okkur lika ad smakka ukraniskt hvitvin (sem var appelsinugult), sem er mjög serstakt fra ödrum vinum thvi thad er mjög saett! Framan a flöskunni var ekki bara synt alkaholsprosentu magnid heldur lika saetu magnid. Thetta sem vid smökkudum var 20% saett og hnausthykkt. Samt var thad minnst saetasta vinid sem haegt er ad fa! Eg imynda mer ad thad saetasta se eins og ad drekka syrop.

Svo vorum vid mjög heppnar thvi vid fengum mida i balletsyningu i Bolshoi, en thad er ekki audvelt med stuttum fyrirvara. Nema madur geri eins og vid, kaupi thad af einhverjum gaur fyrir utan. Thad var algjör tilviljun, aetludum bara ad fara ad skoda og tha kom einhver gömul kona og taladi vid Dima og hann sa um kaupin fyrir okkur, svo vid fengjum thad odyrara. En yfirleitt eru utlendingar rukkadir margfalt meira heldur en heimamenn. Thannig vid erum ad fara ad sja Svanavatnid nuna i kvöld, og thad i Bolshoi! Ekki slaemt…

Oja, ef thu vilt falla inni mannthvöguna, fardu tha bara i pels. Her eru allir i pelsum. Alla vega stor meirihlutinn. Mjög fyndid hvad pelsar, russkinn og ledur er vinsaelt her og sömuleidis i Pollandi. Reyndar er heldur minna um ledur og russkinn her en mun mun meira um pelsa.

Svo finnst mer eg eiginlega verda ad nefna metroid herna. Ekki bara af thvi ad eg hef verid ad bera thau saman i seinustu löndum heldur lika af thvi thetta er liklega flottasta metro i heiminum. Thad er meira eins og ad labba inn i flotta konunglega sali heldur en nedanlestarkerfi. Hvitt, hreint, flottar sulur,veggskraut og rosa ljosakronur utum allt. Veit samt ekki med hversu thaegilegt i notkun thad er. Er örugglega mjög fint ef madur kann russnesku og veit hvert madur er ad fara.

I framhaldi af thessu verd eg ad nefna ad thad var ekkert underground i Pollandi, bara “overground” eda Tram. Lestir ofanjardar sem ganga fyrir rafmagni. Skil eiginlega ekki afhverju vid erum ekki med eitthvad svoleidis a Islandi, vid eigum skit nog af rafmagni af hverju ekki ad nota thad i umhverfisvaenar samgöngur? Herna i Russlandi er straeto sem gengur eingöngu fyrir rafmagni.  Svo snidugt i Russlandi.

A manudaginn förum vid og saekjum midana i lestina og svo hefum vid 6 daga ferdalag okkar til Peking a thridjudagskvöldid.

Eg gaeti sagt endalaust meira, en aetla ad hlyfa ykkur vid thvi. Aetli vid reynum ekki ad henda inn einu bloggi adur en vid förum i lestina, en thid munid sidan ekki heyra i okkur fyrr en vid erum komnar til Peking.

Thetta var allt fra “Russland i dag” ;)

Da svidaniya

Dora..

Ummæli (32) »

Cracow

Aetli eg byrji ekki bara thar sem fra var horfid…

Vid eyddum sem sagt helginni i heillandi fadmi Parisar og hinum litid eytt odruvisi heillandi Jeremy.  Ofsalega fyndin typa, er algjorlega ad mastera allt sem heita sirkuslistir eins og Dora sagdi fra sidast, spilagaldra, handstodur og margt fleira. Held ad hann hafi aldrei farid ut a medan vid vorum hja honum; lai honum thad ad visu ekki, eg mundi sennilega reyna ad takmarka allar minar ferdir um thessar 9 haedir, eda amk. upp thaer! Hann faer samt storan plus fyrir ad vera ofur nice.

A sunnudaginn svafum vid ut og heldum svo nidur i bae. Vid skodudum Catacombs sem er einskonar grafhysi fullt af beinum undir borginni.  Mjog furdulegt ad sja tonn af beinum og hauskupum snyrtilega radad i allskonar veggi og mynstur lengst ofan i jordinni.

Lobbudum medfram Signu, heilladar af ollum teim varningi sem fekkst vid arbakkan og akvednar i thvi ad koma aftur med stora toma ferdatosku!

Smelltum okkur a Twilight i bio til ad drepa timann og var hun bara hin agaetasta skemmtun!

Vid nenntum ekki ad fara ad sofa adfaranott manudags afthvi ad vid attum morgunflug til Kraka. Vid voktum, spiludum, skrifudum i dagbaekurnar okkarog ondudum ad okkur mjog svo afslappandi reyk. Jeremy fekk eitt par af vettlingum fra maedrum okkar. Takk mommur!

Vid lentum i Kraka um hadegi i gaer og drifum okkur a Hostelid okkar sem er mjog fint. Best var tho ad komast i sturtu og thvo fotin okkar! Eyddum svo deginum i algjoru afslappelsi enda litid sem ekkert sofnar. Sofnudum um 9 leytid ad stadartima.

I dag forum vid ad skoda Auschwitz utrymingabudirnar. Eg get ekki sagt ad tad hafi verid skemmtileg upplifun. Thad var mjog atakanlegt ad koma tharna og sja stadinn thar sem milljonir manna tyndu lifinu fyrir tilstilli Hitlers og hans manna til thess ad veita Thjodverjum meira “lifsrymi”.

Auschwitz  voru staerstu utrymingabudir/einbeitingarbudir Nasista a stridsarunum. Upprunalega attu budirnar ekki ad vera utrymingabudir og var tad ekki fyrr en 1941 ad fyrirskipad var ad thaer yrdu midstod fjoldamorda a gydingum og odrum “oaedri” kynflokkum, eins og sigaunum, sl0vum, fotludum, hommum og uppreisnarseggjum.

Auschwitz er skipt i thrjar meginbudir; Auschwitz 1, Auschwitz 2 – Birkenau og Auschwitz 3. Vid skodudum Auschwitz 1 og Birkenau. Thad var mjog skritin tilfinning ad ganga i gegnum hlidid ad fyrstu budunum tar sem hid fraega slagord “Arbeit macht frei” eda Vinnan gerir ydur frjalsa tronir a toppnum. Ad ganga svo ut um tad aftur var jafnvel enn skritnara, vitandi tad ad thusundir manna, kvenna og barna attu ser sennilega tann draum aedstan ad gera slikt hid sama fyrir rumum 60 arum sidan

Vid lobbudum um budirnar, skodudum bustadi fanganna ef bustadi maetti kalla, fyrsta gasklefann (sem stendur einmitt beint fyrir framan hus yfirmanns budanna, thar sem hann asamt konu sinni ol upp 5 born), refsliklefa sem voru innan vid fermeter(thar sem fangarnir voru latnir standa 4 saman nott eftir nott til thess eins ad lida gridarlegar kvalir sem leiddu oft til dauda), ferdatoskur fanganna, barnafot, potta, ponnur, skosvertu og allt tad sem fangarnir toldu sig thurfa vid nyjar lifsadstadstaedur i Auschwitz; Flestir theirra vissu ekki fyrir ad Auschwitz var helviti a jord.

Birkenau voru staerstu utrymingarbudir Nasista. Thar var folkid flokkad vid komu. Sumir voru notadir i vinnu i e-m budum nasistanna en flestir endudu lif sitt i gasklefunum. Tad for hrollur um mann tegar madur labbadi um a sama brautarpallinum og hinir fjolmorgu olansomu einstaklingar adeins orfaum klukkustundum adur en their voru grimmilega myrtir med Zyklon B i yfirfullum” sturtuklefum”.

Eftir thennan atakanlega en jafnframt fraedandi tur um Auschwitz forum vid ad skoda saltnamuna Wielczka sem er ekki langt fra Kraka.

Vid lobbudum nidur 800 threp, naerri 200 metra undir jordina og um 3 km nedanjardar um namuna. I namunni voru nokkrar kapellur sem namuverkamennirnir hofdu skreytt med utskurdi i saltsteininn. Thetta var mjog flott. Tharna er i dag haegt ad gifta sig, spila korfubolta, halda radstefnur, boll, afmaelisparty og fara ut ad borda, allt nokkur hundrud metra undir jordinni. Nokkud magnad!

Vid erum bunar ad vera i thonokkud miklum kulda sidan ferdin hofst og virdist alltaf fara kolnandi thvi lengra sem vid forum fra “Klakanum”. Her i Kraka er sennilega um 8 gradu frost. Takk elsku mommur og systur sem skipudu okkur ad taka nog af hlyjum fotum med. Vid notum thau ospart!

A morgun aetlum vid ad taka lest til Varsja tar sem vid eigum bokad hostel og svo flug i gegnum Finnland til Russlands a fostudaginn.

Reynum ad henda inn myndum fra Varsja!

Gaman ad sja hvad thad eru margir ad fylgjast med, endilega haldid afram ad ver dugleg ad lata vita af ykkur!

Kaerar kvedjur, Kristin turhestursemerkominmedkrampaihendurnareftiralltoflangtblogg!

Ummæli (18) »

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.