Eitt gott rad ef thid aetlid ykkur ad ferdast til Russlands i framtidinni. Laerid stafrofid. Thad er ekki svo erfitt og thad audveldar manni mjög margt. Ef madur kann stafrofid tha getur madur t.d. fundid ut ad кино er lesid KINO og ef madur fylgdist med i dönsku i denn tha veit madur ad KINO thydir bio. Thannig ad кино=bio! Alla vega hafid thad bakvid eyrad. Hjalpar heilmikid.. mörg russnesk ord eru ekkert svo olik thvi sem vid thekkjum, bara skrifud allt ödruvisi..
Vid flugum sem se fra Varsja til Helsinki og thadan til Moskvu a föstudaginn. Thegar vid komum til Russlands thurftum vid ad bida nokkud lengi eftir thvi ad komast i gegnum vegabrefsskodum og thad var horft stift a okkur til ad ganga ur skugga um ad vid vaerum manneskjurnar a myndinni i vegabrefinu. En thad gekk allt blessunarlega, en sömu sögu var ekki ad segja med farangurinn okkar. Thegar vid komum ad faeribandinu tha var farangur utum ALLT. Flestar töskur var buid ad setja i glaera plastpoka og stafla i hrugur en adrar lagu bara her og thar. Eins og bakpokinn minn (okey, bakpokinn hennar Birnu), la mjög umkomulaus a faeribandinu, en bakpokinn hennar Kristinar la hvergi. Hann var tyndur.
Obb bobb bobb.. ekki gott. Vid skottudumst i “Lost and found” og Kristin thurfti ad skrifa nidur fullt af upplysingum um bakpokann sinn og hvad hefdi verid i honum, a russnesk eydublod sem vid skildum litid i og konan i afgreidslunni taladi afskaplega takmarkada ensku en vid skildum alla vega ad vid aettum ad hringja daginn eftir og athuga hvort hann vaeri fundinn tha. Sem hann var, okkur til mikils lettis.
Rett i thessu vorum vid ad tjekka okkur inn a hostel, en vid erum buin ad vera hja theim önyu og Dima seinutu tvaer naetur ( couchsurfers). Thau bua i pinulitilli eins herbergja ibud, thannig ad vid svafum i sama herbergi og thau. Bara nanast vid rumgaflinn theirra (thar er liklega astaedan komin fyrir thvi ad thau hosta bara i tvaer naetur i senn. Geta ekki gert lengri pasu a ehhh.. svefnherbergjaleikjunum sinum). Thau eru reyndar baedi fra Ukraniu en eru samt eitthvad blöndud; russnsesk, hvitarussar og ukranisk, og hafa buid i Moskvu seinustu tvö ar.
Thau eru mjög yndael og almennileg. Foru med okkur nidur i bae thar sem vid saum Kremlin, Raudatorgid, Grafhysi Lenins og fullt af kirkjum sem eg kann ekki alveg deili a en voru mjög flottar og margar hverjar mjög gamlar. Dima leyfdi okkur ad smakka “medovukha” sem er russneskt hunangsöl og er gott ad fa ser thegar thad er kalt uti. Hann for lika med okkur a russneskan veitingastad sem heitir My-My (eda Mu-Mu) og bydur uppa hefdbundinn russneskan mat a sanngjörnu verdi. Thad var mjög gott og vid atum okkur svo pakksaddar ad vid thurftum ekki meira thad sem eftir var dagsins. Aetlum sko bokad ad fara thangad aftur.
Thau syndu okkur lika endalaust mikid af myndum. Af Moskvu ad sumri til, af St. Peturborg, af Ukraniu, fra brudkaupinu theirra og brudkaupsferdinni, fra lautarferdum, fiskiturum og margt margt fleira (held vid höfum skodad naestum allar myndirnar theirra). Thad var mjög gaman ad fa ad sja og heyra um allar thessar hefdir sem thau hafa i kringum brudkaup. T.d. tharf brudguminn ad saekja brudina inn i herbergid hennar og allir aettingjar hennar mega stoppa hann i thvi og krefja hann um adgangseyri. Eins og “Eg hleypi ther ekki framhja nema eg fai vinflosku”, og hann verdur ad verda ad osk theirra, en ma reyndar semja eitthvad. Ad bidja um vin, peninga og nammi er vinsaelast. Svo thegar hann er kominn framhja theim, tha tharf hann ad leysa ymsar thrautir. Yfirleitt spurningar sem snua ad brudinni. Thannig thad getur verid snuid og dyrt ad vera brudgumi i Ukraniu!
Thau gafu okkur lika ad smakka ukraniskt hvitvin (sem var appelsinugult), sem er mjög serstakt fra ödrum vinum thvi thad er mjög saett! Framan a flöskunni var ekki bara synt alkaholsprosentu magnid heldur lika saetu magnid. Thetta sem vid smökkudum var 20% saett og hnausthykkt. Samt var thad minnst saetasta vinid sem haegt er ad fa! Eg imynda mer ad thad saetasta se eins og ad drekka syrop.
Svo vorum vid mjög heppnar thvi vid fengum mida i balletsyningu i Bolshoi, en thad er ekki audvelt med stuttum fyrirvara. Nema madur geri eins og vid, kaupi thad af einhverjum gaur fyrir utan. Thad var algjör tilviljun, aetludum bara ad fara ad skoda og tha kom einhver gömul kona og taladi vid Dima og hann sa um kaupin fyrir okkur, svo vid fengjum thad odyrara. En yfirleitt eru utlendingar rukkadir margfalt meira heldur en heimamenn. Thannig vid erum ad fara ad sja Svanavatnid nuna i kvöld, og thad i Bolshoi! Ekki slaemt…
Oja, ef thu vilt falla inni mannthvöguna, fardu tha bara i pels. Her eru allir i pelsum. Alla vega stor meirihlutinn. Mjög fyndid hvad pelsar, russkinn og ledur er vinsaelt her og sömuleidis i Pollandi. Reyndar er heldur minna um ledur og russkinn her en mun mun meira um pelsa.
Svo finnst mer eg eiginlega verda ad nefna metroid herna. Ekki bara af thvi ad eg hef verid ad bera thau saman i seinustu löndum heldur lika af thvi thetta er liklega flottasta metro i heiminum. Thad er meira eins og ad labba inn i flotta konunglega sali heldur en nedanlestarkerfi. Hvitt, hreint, flottar sulur,veggskraut og rosa ljosakronur utum allt. Veit samt ekki med hversu thaegilegt i notkun thad er. Er örugglega mjög fint ef madur kann russnesku og veit hvert madur er ad fara.
I framhaldi af thessu verd eg ad nefna ad thad var ekkert underground i Pollandi, bara “overground” eda Tram. Lestir ofanjardar sem ganga fyrir rafmagni. Skil eiginlega ekki afhverju vid erum ekki med eitthvad svoleidis a Islandi, vid eigum skit nog af rafmagni af hverju ekki ad nota thad i umhverfisvaenar samgöngur? Herna i Russlandi er straeto sem gengur eingöngu fyrir rafmagni. Svo snidugt i Russlandi.
A manudaginn förum vid og saekjum midana i lestina og svo hefum vid 6 daga ferdalag okkar til Peking a thridjudagskvöldid.
Eg gaeti sagt endalaust meira, en aetla ad hlyfa ykkur vid thvi. Aetli vid reynum ekki ad henda inn einu bloggi adur en vid förum i lestina, en thid munid sidan ekki heyra i okkur fyrr en vid erum komnar til Peking.
Thetta var allt fra “Russland i dag” ;)
Da svidaniya
Dora..