Fra Vietnam la leid okkar til Astraliu, med stuttu stoppi i Hong Kong. Annad skipti sem vid millilendum tar en akvadum ad smella okkur ut af flugvellinum i tetta skiptid og kikja adeins a borgina. Ljosadyrd, skyjakljufar, fjorugt naeturlif og heill hellingur af enskumaelandi folki var svona tad helsta sem fyrir augu okkar bar tessa nott sem vid eyddum i Hong Kong. Tilltum okkur a troppur med Kebab og virtum fyrir okkur mannlifid a adal djammgotunni. Dora dro fram teikniblokkina og adur en langt um leid hafdi hun eignast heimilislausan addaanda sem kunni serstaklega ad meta tad tegar hun teiknadi hest fyrir hann. Hann hljop samt i burtu eins og pila tegar eg aetladi ad taka mynd af teim saman. Fyndinn kall. Fyndin Dora.
Eftir taepan solarhring a ferd og flugi lentum vid i Perth og turftum ad gera grein fyrir ollum matvaelum, vatni, tremunum, dyrum, skit og drullu og ollu tvi sem gaeti ognad astrolsku lifriki. Vid komumst i gegn tratt fyrir oll grutskitugu fotin okkar sem eru lifriki ut af fyrir sig.
Bob, Juliet og Nanna (vinafolk Halla og Thoreyjar, Doruforeldra), toku vel a moti okkur a flugvellinum og var mjog notalegt ad tala islensku vid annad folk svona til tilbreytingar. Tau voru svo elskuleg ad sja um okkur yfir paskana og ekki skemmdi fyrir ad tau bjuggu a besta stad i borginni, alveg vid strondina!
Vid brolludum ymislegt tessa 5 daga sem vid vorum i Perth. Kiktum m.a. i dyragard tar sem vid saum og kloppudum kengurum og vombum, saum emu’s, koalabirni, lamadyr, kameldyr og allskyns furdufugla. Okkur finnst alveg merkilegt hvad dyrin herna i Astraliu eru allt, allt odruvisi en annars stadar a hnettinum, pinu eins og ad sja risaedlur fannst okkur. Hofum reyndar ekki sed mikid af teim en… aej.
Eftir ad hafa baedi sed og klappad kengurum tennan daginn var ekki annad haegt en ad leggja eina slika undir tonn. Smakkadist hun afbragds vel!
Paskadagurinn var sennilega sa ovenjulegasti sem vid Dora hofum upplifad. Voknudum i glampandi solskini, bordudum breskan paskamorgunmat, forum i breska thjodkirkju og sungum breska salma i Astraliu. Eftir messu stungum vid okkur til sunds i sjonum, bordudum dyrindis lambalaeri og forum i utibio um kvoldid a polska mynd um helforina.
Annan i paskum foru Bob og Juliet med okkur nidur i Swan Valley, sem er dalur rett utan vid Perth tar sem eru god skilyrdi til landbunadar. Heilu ferkilometrarnir af girnilegum vinthrugum, fallegum rosum, gomsaetum avoxtum og odru sliku. Smelltum okkur baedi i vin – og sukkuladismokkun (sem var hreint ekki leidinlegt), skodudum fallegan rosagard, Kings Park og toppudum daginn med tvi ad rekast a villtar kengurur sem var mjog skemmtilegt.
Sidasta daginn okkar i Perth tokum vid ferju ut a Rottnest Island sem er eyja rett utan vid borgina. Eyjan er mjog falleg, tiltolulega litil, med fallegar strendur og FULLT af Quokkas! Quokkas eru litil dyr a staerd vid kaninur, likjast pinu naggrisum eda rottum (eins og nafn eyjunnar bendir til) en hoppa um allt eins og kengurur. Frekar fyndin og skemmtileg dyr. Vid leigdum okkur hjol og hjoludum hringinn i kringum eyjuna. Stoppudum a einni strondinni, snorkludum og byggdum sandkastala. Tar sem vid tymdum ekki ad leigja girahjol, og eyjan talsvert haedott, urdum vid ad gefa vel i tegar vid forum nidur brekku svo ad vid aettum betri sens a ad komast upp naestu brekku an tess ad reida hjolid. Gekk tessi ahaettuleikur storafallalaust fyrir sig, fyrir utan tad eitt kannski ad Dora litla solbrann adeins i allri solinni.
Vid kvoddum Perth og okkar godu gestgjafa i fyrradag og flugum yfir til Sydney. Tar tok hinn astralski Tyson a moti okkur en hann er buinn ad vera svo elskulegur ad leyfa okkur ad gista hja ser ta daga sem vid erum her. Tyson er hermadur i astralska flotanum, i sersveit sem serhaefir sig i nedansjavaradgerdum eins og t.d. ad sprengja upp ovinaskip og sokkva kafbatum. Spennandi vinna! Hann Tyson er nu samt oskop vinalegur og litur sko ekki ut fyrir tad ad vera vitund haettulegur. Hann labbadi m.a.s. med okkur nidur ad hofn ad skoda operuhusid og Sydney harbour bridge ad kvoldi til sem var mjog tilkomumikid. Hann labbadi lika med okkur i gegnum The Rocks, sem er elsta hverfid i Sydney, og sagdi okkur sogur af skapbradum sjourum, lauslatum konum og limlestingum af ymsum toga. Akaflega spennandi!
Fyrir utan tad ad rolta um tessa fallegu borg og skoda mannlifid smelltum vid okkur til raedismannsins herna i Sydney, nyttum kosningarett okkar og postlogdum atkvaedin heim.
Toskurnar thyngjast enn og pyngjurnar lettast af einhverjum storfurdulegum astaedum… Urdum nu samt katar i kampinn tegar vid uppgotvudum ad vid megum fljuga med 2×20 kilo heim en ekki bara 20 eins og vid heldum fyrst! :)
Aetli eg hafi tetta nokkud lengra ad sinni, turfum ad fara ad koma okkur heim til Tyson ad pakka nidur fyrir flugferdina okkar til Los Angeles a morgun. Litlir 13 timar, takk fyrir, og hellings timamismunur. Graedum naestum tvi heilan dag sem er nokkud nett!
Kaerar kvedjur fra, hinni mjog svo vinalegu, Astraliu!
Kristin G.
p.s. Einungis 23 dagar i heimkomu!