Um okkur
Halló!
Við heitum Kristín Gestsdóttir og Dóra Haraldsdóttir og við erum á leiðinni í heimsreisu!
Við erum bara ósköp venjulegar stelpur frá Selfossi/Laugardælum, forkunnar fagrar og hömlulaust hæfileikaríkar sem vissu ekki hvað þær ættu að gera eftir stúdentspróf svo þær ákváðu bara að fara í heimsreisu.
Við eyddum hálfu ári í að vinna okkur inn pening svo við gætum lifað hátt í útlöndum en okkar elskulega kreppa gerði það að verkum að við munum líklega rétt eiga fyrir vatnssopa og brauðmylsnu.
Kristín gegndi veiga miklu starfi við uppgjör og afgreiðslu í BYKO og Dóra hélt landanum söddum með því að troða hann út af pylsum og breiðlokum, passaði afa sinn og ömmu og girti hjá pabba sínum.
Þessi ferð er bara sú fyrsta af mörgum. Enda tókum við meðvitaða ákvörðum um að leggja ekki allan heiminn að fótum okkur í einu.

Hrafnhildur sagði,
27 desember, 2008 @ 6:59 pm
Úhh má ég koma með í ferð númer tvö!?
Eiríkur Þór sagði,
8 janúar, 2009 @ 8:07 pm
Aldeilis flott mynd af ykkur. Já ég hélt að þetta væri hún Dóra frá Laugardælum. Gangi ykkur vel. Þetta er alveg rosalegt að Kristín skuli vera búin að yfirgefa okkur í Byko. Kveðja EirSig
Hildur Gríms sagði,
27 janúar, 2009 @ 2:44 pm
Þið eruð bjútí ;)
..væri líka til í að fara í svona ferð með ykkur þegar þið eruð komnar með börn svo við getum bara tekið þau með okkur, þá þarf ég ekkert að skilja Mána eftir!! hehehehehehehe!
lena ósk sagði,
2 febrúar, 2009 @ 9:37 pm
hæ mamma og ammma flott síða við söknum iikar kv lena og arnar