The land of smiles

Enn a ny kominn timi a frettir af ferdalogum okkar vinkvennanna og fra ymsu ad segja.

Tegar vid skildum vid ykkur sidast vorum vid stollur staddar i party paradis Taelands; Koh Phan gan eyju.  Eins og okkar var von og visa  (tar sem vid erum ju sidprudar og hattvisar stulkur i meira lagi) skemmtum vid okkur mjog svo vel og fallega. Eftir Half moon party-id sem saug og hid litid eitt athyglisverda Pool-party akvadum vid ad kanna stemminguna i strandparty-unum vidfraegu sem fara fram, eins og nafnid gefur kannski til kynna, a einni af strondunum a eyjunni. Kipptum med okkur pari af israelum og heldum ut i nottina. Fyndid kvold og fyndid folk :) Dora var klarlega hetja kvoldsins med massivt svol brunasar a ristunum eftir totally awesome stunt i eld snu snu!

Gerdum annars frekar litid a Koh Phan Gan annad en ad liggja i solinni og reyna ad flaema baendabrunkuna i burt, borda godan mat, sem vid skoludum nidur med Singha, svamla um i sundlauginni og leika vid israela og svia. 

Eftir thessa endurnaerandi daga a Koh Phan Gan var forinni haldid afram til Koh Tao eyju en hun er ein af adal stodunum i Taelandi til ad laera ad kafa a og vel ad merkja med tvi odyrasta sem gerist i heiminum. Vid,hagsynar eins og endra naer, akvadum ad skella okkur a kosta tilbod fra Coral Grand Resort og naela okkur i byrjunarkofunarrettindi. Israelarnir eltu okkur, enda ovidjafnanlega skemmtilegar, og einn af teim akvad m.a.s. ad laera ad kafa med okkur. Eg verd nu ad vidurkenna ad eg var med sma stresskall i maganum. Var ekki alveg viss hversu mikid eg aetti ad reyna a lukkuna, tar sem hun hafdi verid af ansi skornum skammti undanfarid. Eg akvad nu samt ad lata allar hugsanir um mig sem fiskamat a sjavarbotni lond og leid og vid hofum nam okkar.

Tad var pinu skritin tilfinning ad turfa ad lesa skolabaekur, laera heima og taka prof enda hofum vid ekki komid nalaegt sliku i ad verda ar nuna en eg held ad vid hofum badar fylad tad i laumi :) Kennarinn okkar var finnskur, het Pauliina og var hress. Vid aefdum okkur fyrst i sundlauginni, hvernig aetti ad anda og fljota og synda og laga gleraugun og allt svoleidis og stungum okkur svo i sjoinn daginn eftir. Tad var thokkalega mognud tilfinning ad geta verid ofan i sjonum a 12-18 metra dypi i um klukkutima an tess ad turfa ad koma upp og anda! Allt gekk mjog vel, sjorinn var frabaer, fiskarnir voru frabaerir, vid vorum frabaerar OG vid vorum ordnar eins og fagmenn i sidustu kofununum okkar, farnar ad gera allskonar trikk og stinga okkur i sjoinn ad haetti James Bond, s.s. frekar nettar! Tetta fer pottthett a ferilskranna = Med grunnskolaprof, studentsprof, tungumalakunnattu og kofunarrettindi! FLOTHELT! :)

Sidustu daga hofum vid dvalid i mekka bakpokaferdalanganna; Kao San road i Bangkok.  Tessi borg er i einu ordi sagt brjalud og Kao San er virkilega athyglisverdur stadur. Allar sogurnar sem eg hafdi heyrt eru sannar margfaldadar med fimm.  Mannlifid er idandi og usandi af orku, umferdin er gedveiki svo eg tali nu ekki um hitann sem er gedsyki! Tu getur bokstaflega fengid allt sem hugurinn girnist, ja og girnist ekki, fyrir litid sem ekki neitt. Hefdum t.d. vel getad sparad okkur tessa tusundkalla i kofunina og keypt okkur bara kofunarskirteini fyrir kuk og kanel af Mr. Bong eda diplomu af Mr. Humpalot.  Dubius karlar ad bjoda manni a ymis konar syningar, klaedskerar og Tuk-tuk bilstjorar a hverju horni og alltaf einhver sem heldur ad tu sert heimski utlendingurinn sem gaetir skilad godum ardi i kassann tann daginn. Vid erum bunar med okkar skammt af svikum og svinarium og hlaejum bara framan i ta, eins og Simbi hlo framan i haetturnar.

Sokum tess hve hagsynar vid erum akvadum vid ad vera ekkert ad spreda i gistingu heldur fundum herbergi a godum pris a godum stad. Win, win, eda svona tvi sem naest.  Vankantarnir eru hins vegar teir ad naudsynlegt er ad sturta sig eftir naetursvefninn tar sem tad er ekkert grin ad sofa i tessum djupsteikingapotti med viftuna eina ad vopni= svitabad. Eyrnatappar og I-pottar eru lika akaflega hentugir hlutir,  en teir dempa metal bandid i naesta husi um nokkur desibil.

Tar sem vid erum ju staddar i Taelandi er vel vid haefi ad reyna ad vera eins taelandi og kostur er. HOfum vid tvi tekid upp tann agaeta sid ad safna svitablettum nidur a rasskinnar, fa okkur sisveitta efri vor og lodursveitt har.  Flestum tykir vid mjog settlegar og adladandi. Erum samt ad velta fyrir okkur ad leggja tennan sid nidur tegar vid snuum heim aftur, hugsa ad aettingjar og vinir yrdu sattir med tad.

Hitinn hefur haft margvisleg ahrif a okkur her, m.a. thau ad vid saum okkur ekki faert ad fara ad skoda oll tau fjolmorgu hof og byggingar sem Bangkok hefur ad geyma. Gerdum reyndar heidarlega tilraun i dag til ad skoda borgina, en gafumst upp af hita og vokvaskorti vid Grand Palace og tokum leigubil heim. Flottar a tvi, en vissulega hagsynar, pruttudum verdid nidur ur ollu veldi eins og fagmenn. Hofum vid tvi heldur haldid okkur a loftkaeldum stodum eins og MBK verslunarmidstodinni tar sem vid gerdum morg kostakaup. Hefdi eiginlega bara verid heimskulegt ad eyda ekki svolitid af peningum tar tar sem allt var svo fjari odyrt. Sannast enn a ny hversu mikid peningavit vid hofum… :)

Vid Dora erum teirrar gaefu adnjotandi ad vera bunar ad eignast helling af vinum fra ollum heimshornum a tessu flakki okkar. Frabaert og allt tad, en tad leidinlegasta vid tad er ad turfa ad kvedja tau an tess ad vita hvort ad madur eigi nokkurn timan eftir ad sja tau aftur. Erum samt duglegar ad bjoda ollum heim til Islands (auglysum land og thjod og hversu hagstaett se fyrir utlendinga ad ferdast til Islands nuna, synum teim myndir, segjum fra  neaturlifinu og ad allir karlmenn gangi med horn a hausnum)Comission, ja t.

Aetli eg hafi tetta nokkud lengra i bili, ekki besta blogg i heimi en allavega einhverjar frettir. Turfum ad vakna snemma i fyrramalid til ad na rutunni til Siam Reap i Kambodiu (med enga loftraestingu, jaeks, gaman, gledihopp).

Dora litla lipurta bidur ad heilsa….

Kristin G, er yfir og ut fra Kao San rd, Taelandi.

12 svör hingað til »

  1. 1

    Birna sagði,

    Súúúúper ;)

    Fenguð þið ekkert í eyrun á að kafa svona djúpt? Ég hef bara kafað rétt svo og ég var með brjálæðislega mikla inniloknuarkennd allan tíman, ég er nú ekki eins mikil ofurkona eins og þið stöllur. Það er alltof gaman að lesa bloggið, ég hló næstum upphátt hérna á þjóðarbókhlöðunni sem hefði ekki lagst vel í manninn við hliðiná mér.

    Hlakka mjög svo mikið til að sjá myndir af þessu öllu saman sem þið eruð að skoða í hitanum á meðan við húkum heima í storminum og kuldanum. Og ég er alveg til í að sjá myndir af svitanum en plís ekki vera þannig þegar þið komið heim ;)

    Þið eruð líka alvega að selja okkur Tæland, ég er mjög svo til í að fara þanngað eftri að hafa lesið þetta.

    En knús á ykkur snúðar :) Hlakka til að heyra meira frá ævintýrum ykkar

  2. 2

    Þorey dórumamma sagði,

    Sælar elsku dúllurnar mínar!!!!

    Gaman að það er gaman hjá ykkur og líka gaman að þið þráið að koma heim!!!
    Dóra ég frétti að þú hefðir borðað sporðdreka !! þokkalegt ef þið þurfið allskonar furðudýr er heim kemur knús og kram Kristín mín lukkan er örugglega að snúast þér í hag knús og kram Dórumamma

  3. 3

    Hugrún sagði,

    Úff það verður fátt sem þið hafið ekki upplifað þegar þið snúið aftur heim á frón ;-P

    Mér finnst alveg geggjað að þið séuð með kafararréttindi, væri ekkert á móti einu slíku á ferilskránni, en treysti því að þið kennið mér réttu tökin og leyfið mér að finna nasaþefinn af því í Sundhöll Selfoss. Mér finnst líka geggjað að þið séuð farnar að hlakka til að fara aftur í skóla, allaveganna get ég ekki beðið eftir að fá ykkur í bæinn ;)

    Hlakka til að heyra sögur frá Kambódíu;**

  4. 4

    Sara Kristín sagði,

    Erna býr í Pnom Penh í Kambódíu. Hún er alltaf á Lakeside sem er backpacker hverfið og vinnur á mjög skemmtilegu munaðarleysingjaheimili. Endilega senda henni línu. http://www.euis.blog.is/blog/euis/ er bloggið hennar.

  5. 5

    Stebbi sagði,

    FLOTHELT! sjitt ætla ég að byrja nota þetta mikið! En vá, sá “sjúkdómur” sem ég er eiginlega hræddastur við er köfunarveiki, var engin hætta á því hjá ykkur?

  6. 6

    Hildur Gjé sagði,

    Ekki sammála lokaorðum þínum systir kær í færslunni hér að ofan um að þetta sé ekki besta blogg í heimi…mér fannst þetta stórskemmtilegt og mjög svo lýsandi á hversdagsleika ykkar vinkvendanna…ef hversdagsleika skyldi kalla??? Allavegana varð mér heitt og fann fyrir svita á efrivör og í handarkrikum við lesturinn, heyrði fyrir mér, Hello, wherer are you from frá sölufólki og öðru góðu fólki, svalandi sjóinn, svalandi Singahinn…umm….svo lifandi voru skrif þín elskan :-)

    Stórt knús og góða rútuferð til Kambó (vona að þið verðið ekki sviknar um stórskemmtileg kambódísk tónlistarmyndbönd á leiðinni!)

    Ást, friður og hamingja – Hildur og Ísak litli frændi – og auðvitað Addi mágur!

    p.s. ég hef eina kambódíska ósk, mig langar svo í svona khmeraklút…þú sérð marga með svoleiðis (bundna um mittið eða höfuð) og þeir eru seldir út um allt á only 1 dollar…fyrirfram þökk :-)

  7. 7

    Ólöf Inga sagði,

    Elsku Dóra frænka og Kristín Dóru-frænku-vinkona!

    Svo gaman að lesa “ykkur”! Upplifi alveg Tæland og Bangkok með öllu við að lesa póstinn! Hiti og sviti! Man sérstaklega eftir því að vera klædd í svarta síðerma peysu og sítt pils í Grand Palace… og svitadropum… samferðafélögum mínum til ómældrar skemmtunar!
    Sé líka að það er komin pressa á Dórumömmu um að elda eitthvað sem hentar þegar þið komið heim… sporðdreka verður erfitt að finna en ég held hún finni upp á einhverju öðru!

    Góða ferð í rútunni! :o)

    Knús og klemmsi, Ólöf Inga

  8. 8

    Billi sagði,

    Sammála Hildi…. stórskemmtilegt blogg… algjörlega flothelt ;) Sjitt hvað þið eruð samt búnar að upplifa margt… verður gaman að hitta ykkur í maí… ! Au revoir..

  9. 9

    Heiðrún Erna sagði,

    Sælar elsku vinkonur!
    Mér finnst sjúklega kúl að þið séuð orðnir kafarar.
    Vonandi eigiði aldrei eftir að verða bitnar af fiskum… nú eða kröbbum kannski.

    Þið eruð kúl og bloggið er kúl.

    Kúlkúl!

    Bless ;)

  10. 10

    Hjalti Kristjánsson sagði,

    Þau hrúgast upp ævintýrin hjá ykkur. Frábært hvað allt gengur vel og hvað þið eruð jákvæðar. Um að gera að njóta lífsins og vera opinn fyrir öllu. Skemmtilegir pistlar frá ykkur.
    Kveðja úr miðborginni Lalli og Silja

  11. 11

    eg ætla biðja ykkur um að koma ekki með of marga útlendinga heim! :)
    en það er alltaf jafn leiðinlegt að kveðja fólk sem maður kynnist og hittir þau svo sennilega aldrei aftur..

    en haldið áfram að skemmta ykkur gaman að lesa þetta blogg.

    gangi ykkur vel,
    bestu kveðjur
    Gestur frá Hæli :)

  12. 12

    Anna Stefanía sagði,

    Spennó spennó…ég gæti alveg hugsað mér að prófa að kafa með ykkur þó svo ég sé skíthrædd við svona djúp vötn og djúpar sundlaugar….að fara í sundlaugina í Hveragerði er kreisí adrenalínkikk fyrir mig en hún er nú bara eitthvað 3 metrar á dýptina;) ég er mjög ánægð með ykkur elsku Vinkonur

    Haldið áfram að hafa gaman sæturófur:**

    Knús og kram:*


Ummæli RSS · TrackBack URI

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.