Eftir 20 tima rutuferd fra Hoi An, lentum vid i Hanoi, hofudborg Vietnam. Rutukallinn maelti med hoteli fyrir okkur : Very nice place, only 10 dollars, breakfast included, free internet AND a satellite TV. Vid bara, ja okey, flott, kylum a tad en ad sjalfsogdu akvadum vid ad fa ad kikja a herbergid fyrst (aftvi ad vid erum svo skynsamar sjaidi til) : Can we take a look at the room please? Sem vid og gerdum. Okey, rosa fint herbergi a 2 haed. Vid: Yes ok, we’ll take it! Hotelkall: Ok, we just have to clean it, you just go back downstairs and wait for 5 minutes.
Eftir 5 sinnum 5 minutur vorum vid leiddar upp i herbergi, sem af einhverjum storfurdulegum astaedum hafdi faerst ur stad og var nu komid upp a 5. haed (sem er pirrandi med 20 kg a bakinu, litid sofinn, svangur og urillur, og ja tad var engin lyfta). Herbergid hafdi ekki bara faerst ur stad heldur einnig skroppid allsvadalega saman og fengid ser nokkra litid gedslega myglubletti her og tar, gervihnattasjonvarpid reyndist adeins na nokkrum rugludum vietnamiskum sjonvarpsstodvum og til ad toppa tetta allt saman tuftum vid ad beygja okkur tegar vid gengum inni herbergid tar sem ad lofthaedin var med minnsta moti. Tokum skynsamlega akvordun um ad sleppa tvi ad hoppa i rumunum i tetta skiptid. Nenntum nu samt sem adur ekki ad ergja okkur yfir tessu heldur fengum okkur vaenan fegurdarblund i (otrulegt en satt) guddomlega godum rumum. Tegar vid voknudum fottudum vid ad vid hofdum ekki fengid neinn lykil, tannig ad eg sendi hana Doru litlu nidur alla stigana ad saekja ta. Tegar Dora var ekki komin aftur eftir 15 minutur for eg ad spa i hvort ad vid hefdum orugglega ekki bara verid a 5. haed ekki 15. haed, tar sem hun var ekki enn komin aftur. Skommu seinna smeigdi hun ser to inn um lagreistu dyrnar a herberginu okkar, heldur slegin (roleg, ekki slegin, lamin, slegin, bara slegin, hissa, slegin). Ta hafdi hun Dora sem sagt ordid vitni ad fjorugum bardaga a milli hotel starfsfolksins og folks utan af gotu i lobbyinu tar sem stolar, pottar, ponnur og svedjur voru hafdar um hond.
Vid, avallt svalar, akvadum to ad aesa okkur ekkert yfir tessu og heldum hlaejandi ut a gotu i hadegismat.
Vid smelltum okkur i 3 daga ferd um hinn romada Halong floa. SKipid okkar(og reyndar oll hin 3000 sem sigldu um floann) leit ut eins og sjoraeningjaskip sem var geggjad. Fyrsta daginn skodudum vid risa storan helli og forum a Kaejak. Vid Dora vorum nu ekki lengi ad koma okkur upp a lagid med taeknina og heldum otraudar ut a floann a tveggjamanna kaejaknum okkar. Vid skemmtum okkur konunglega siglandi um i oliubrakinni syngjandi islensk aettjardarljod og poppslagara fullum halsi. Eg skemmti mer serstaklega vel tegar eg heyrdi ad Dora song “Heita Ninaaaaaaaa” i stadinn fyrir ”Hey kanina” og hun trudi mer ekki ad textinn vaeri i raun og veru “Hey kanina”. Mer tokst to ad sannfaera hana ad lokum en hun skildi ekki ad enginn hefdi tekid eftir tessu adur. Inga Berg? Att tu ekki ad fylgjast med svona logudu?
Eftir kvoldmat a batnum spjolludum vid heillengi vid hina irsku Isabelle sem er fatahonnudur og vinnur vid ad sauma buninga i biomyndir. Hefur hun m.a. unnid med Colin Farrel og maelt hann sundur og saman en hun vildi to ekki gefa okkur upp nein mal. Ad loknum godum degi logdumst vid svo til hvilu i kaetunni okkar tar sem kanadiski herbergisfelagi okkar, hun Arian beid okkar.
A odrum degi lentum vid a Cat Ba eyju sem er staersta eyjan a floanum. Vid gengum/klifrudum upp fjall i Cat Ba thjodgardinum og vorum vel sveittar tegar a toppnum var nad. Utsynid var to storfenglegt thratt fyrir fremur lelegt skyggni. Eftir trekkid (sem eg hafdi, otrulegt en satt, komist i gegnum storslysalaust) var okkur skutlad upp a hotel og vid akvadum ad rolta adeins um eyjuna. Tar var to heldur litid ad gera, tar sem tetta er fyrst og fremst solbadsstadur og ekki let solin sja sig.
A 3. degi heldum vid til baka og satum uppi a dekki alla leidina til Halong city og letum okkur dreyma um heimahagana og allt tad sem vid aetlum ad gera og borda tegar vid komum heim :) (engar ahyggur, okkur er ekki farid ad leidast og vid erum ekki ad farast ur heimthra,erum bara ad laera betur og betur ad meta allt tad goda sem vid eigum heima a Froni).
Thegar vid lentum aftur i Hanoi tjekkudum vid okkur inn a hid mjog svo huggulega og vinalega Viet Fun Hotel (akvadum s.s. ad gefa skit i bardagahundana a hinu hotelinu).
Erum bunar ad eiga frekar afslappada daga her i Hanoi, bunar ad labba um gamla baeinn, kikja a markadinn, fara i vatnabruduleikhus (sem var aedislega fyndid og skemmtilegt) og horfa a fuuuullt af biomyndum. Her er nefnilega ekki thverfotad fyrir sjoraeningjaeintokum af ollum biomyndum og sjovarpsserium i heiminum sem seljast fyrir skid og ingenting! Vid akvadum ad leigja okkur DVD spilara og keyptum okkur um 20 diska. Erum tvi bunar ad sja allar Oskarsmyndirnar i ar og hofdum mikid gaman af. Keyptum okkur lika allar Friends seriurnar a 6 diskum a 2000 kall :) hohoho!
Hofum tekid eftir tvi ad folkid her a eitthvad erfitt med ad brosa og vera vingjarnlegt. Madur tarf eiginlega ad gratbidja folkid a markadnum um ad afgreida sig (fyrir sunnan fer madur ad grata af tvi ad folkid vill afgreida mann i drasl). Umferdin er eins og i Hoh chi minh city, klikkud og madur tarf ad hafa sig allan vid ad verda ekki fyrir vespu. Maturinn her er lika ekki eins godur og i Sudur- Vietnam, half bragd- og litlaus og vedrid er meira ad segja lika buid ad gefa skit i okkur en vid erum grenjum nu ekki yfir tvi, tvi ad vid erum svo hardar. :)
Vid erum haegt og sigandi ad verda alvoru bakpokaferdalangar; Dora bordar villt og galid hja gotusolum allskonar hrisgrjonabollur og grillkjot og eg er komin med thokkalega thetta ferdalangaleggi (og ef einhver er i vafa hvernig madur odlast slika leggi ta tarf madur sem sagt ad vera med massivt mikid af marblettum, hruflud hne, sar og skramur, moskitobit, brunasar eftir pustror og sar eftir mann sem hjolar inn i mann) .
Aetli eg lati tetta ekki gott heita i bili og enda tetta a somu notum og eg byrjadi tvi ad okkar bidur 20 tima rutuferd fra Hanoi til Vientiane i Laos i kvold. Sjaumst i Laos!
Stina Bina :)
p.s. Bloggid hljomar sennilega eins og vid seum adeins meira bitrar ut i Hanoi en vid erum. Tetta er skemmtileg borg, idandi af mannlifi og snidugum hlutum.